Áframhaldandi fjallahjólaæfingar fyrir krakka 10-15 ára

Vegna góðrar reynslu og mikillar eftirspurnar halda fjallahjólaæfingar fyrir krakka 10-15 ára áfram fram á haustið. Næsta ævingatímabil byrjar 16. ágúst og stendur til 6. október 2022.
Æfingar verða á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17.30 - 18.45 í Öskjuhlíð og víðar

Tímabil: 8 vikur - 16 skipti (16.8.-6.10.2022)
Verð: 26.900 kr.
Mögulegt er að nota frístundastyrk til niðurgreiðslu á námskeiðinu.

SKRÁNING HÉR í Sportabler:
https://www.sportabler.com/shop/tindur/hjolaskolinn...


NÁNARI LÝSING:

Tindur og Hjólaskólinn bjóða í sumarið og haust (2022) upp á fjallahjólaæfingar fyrir börn 10 - 15 ára (2012 - 2007 árg.), tvisvar í viku. Skipt verður upp í yngri og eldri hóp - reyndari/óreyndari hóp.

Markmið æfinganna er að skapa hjólagleði og áhuga með því að kenna og þjálfa börn í fjalla/hjólafærni af öryggi í náttúrunni. Námskeiðið er lifandi kennsla í hjólafærni á stígum, malarvegum og slóðum í náttúrunni. Við lærum og æfum helstu tækniatriði hjólreiða sem auka á sjálfstraust og skemmtun á hjólinu!

Öskjuhlíðin og nágrenni er frábært svæði til að læra og leika á hjólinu, endalausir möguleikar og mörg ólík erfiðleikastig. Á æfingunum verða aldurs- og getuskiptir hópar og allir hjóla á sínum forsendum, hversu stutt eða langt barnið er komið í íþróttinni. Allir læra og fá að njóta sín!

Stundum getur verið að við hittumst annars staðar við nágrenni Reykjavíkur.

Þjálfarar eru sem fyrr Erla Sigurlaug og Þóra Katrín vanar hjólakonur hjá Hjólaskólanum en er þetta fimmta árið þeirra með Tindur Kids. Eru þær báðar með þjálfarapróf 1 og 2 frá ÍSÍ og Alþjóðahjólreiðasambandinu (UCI), ásamt því sem Þóra Katrín er með alþjóðleg fjallahjólakennararéttindi PMBIA frá Kanada og Erla er með alþjóðlega reynslu frá landsliðinu. Verða þær með fleiri vana þjálfara með sér til að sjá um æfingarnar.
Frekari upplýsingar og fyrirspurnir: hjolaskolinn@gmail.com

SKRÁNING HÉR í Sportabler:
https://www.sportabler.com/shop/tindur/hjolaskolinn...

Nánari upplýsingar á hjolaskolinn@gmail.com

Hrönn Jónsdóttir