Æfingaferð Tinds

Tindur fór í götuhjólaæfingarferð daga 11. til 18. mars til Gran Canarias . Alls voru 30 Tindara sem héldu í þessa ferð. Skipulag ferðarinnar var í höndum Tindara og voru gefnar út dagleiðir fyrir hvern dag og var hjólað í 3 getu flokkum. Í heildina voru hjólaði um 15.000km, 260.000 metra upp og 640klst á hjól +/- 5%. Nokkrir voru að fara í sína fyrstu æfingaferð á erlenda grundu og margir unnu persónulega sigra í brekkum, lengd eða tíma á hjóli.

Stemmningin í hópnum var gríðarlega góð og var Tinds andinn alsráðandi, að hafa gaman með blóðbragð í munninum ásamt því að njóta þess að vera á hjólinu. Ekki skemmdi fyrir að sjá hvað kittið okkar sem kom út í fyrra tekur sig vel út í sólinni.

Tindur hefur farið árlega í æfingaferð og strax í haust tökum við ákvörðun hvert skal haldið næst.

Hrönn Jónsdóttir