Sumarhjólanámskeið í náttúrunni fyrir börn 7-12 ára.

Tindur hjólreiðafélag og Hjólaskólinn kynna: Sumarhjólanámskeið í náttúrunni fyrir börn 7-12 ára.

Markmið námskeiðanna er að skapa hjólagleði og gera hjólreiðar ævintýralegar og eftirsóknarverðar hjá börnum. Við æfum hjóla- og umferðarreglurnar, förum í hjólatúra á stígum, malarvegum og slóðum í náttúrunni og lærum og æfum helstu tækniatriði hjólreiða í skóginum, sem auka á færni, sjálfstraust og skemmtun á hjólinu!

Fæðingarár: 2011-2016

Aldurs- og getuskiptir hópar og allir hjóla á sínum forsendum, hversu stutt eða langt sem barnið er komið á hjólinu. Allir læra og fá að njóta sín!

Námskeiðin eru fjórir eða fimm dagar kl. 9 - 11.45 á eftirfarandi dagsetningum í Öskjuhlíð og Norðlingaholti/Heiðmörk.

● Námskeið 1 - 12.-16. júní (5 dagar) Öskjuhlíð

● Námskeið 2 - 19.- 23. júní (5 dagar) Öskjuhlíð

● Námskeið 3 - 8. - 11. ágúst (4 dagar) Norðlingaholt

● Námskeið 4 - 14. - 18. Ágúst (5 dagar) Öskjuhlíð

● Hjól: Fjallahjól með grófum dekkjum. Athuga vel að dekk, bremsur og gírar séu í góðu lagi. Gott er að hafa aukaslöngu ef það skildi springa. Börn skulu koma með nesti með sér (t.d. samloku og ávöxt) og drykk í bakpoka (með breiðum böndum - ekki sundpoka) sem þau geta hjólað með. Einnig þurfa börnin að vera klædd í samræmi við veður hverju sinni. Hjálmaskylda er á námskeiðinu.

● Þjálfarar eru sem fyrr Erla Sigurlaug og Þóra Katrín vanar hjólakonur hjá Hjólaskólanum en er þetta fimmta árið þeirra með sumarhjólanámskeiðin. Eru þær báðar með þjálfarapróf frá ÍSÍ ásamt því að vera með alþjóðleg fjallahjólakennararéttindi. Munu þær fá fleiri vana hjólara með til aðstoðar.

Verð:

Kr. 19.900 fyrir 5 daga námskeið

Kr. 15.900.- fyrir 4 daga námskeið

- 10% systkinafsláttur er af barni nr. 2. - kemur sjálfkrafa við pöntun

Vakin er athygli á því að Tindur og Hjólaskólinn geta ekki fellt niður eða endurgreitt námskeiðsgjöld ef afbókað er með minna en viku fyrirvara.

Ef afbókað er með a.m.k. viku fyrirvara fæst 50% endurgreiðsla.

Skráning í https://www.sportabler.com/shop/tindur/hjolaskolinn

Frekari upplýsingar og fyrirspurnir: hjolaskolinn@gmail.com

Tindur Hjólreiðafélag