Sumarhjólanámskeið 2019

Tindur sumarhjólanámskeið 2019 - Ævintýrahjól í náttúrunni fyrir börn 7-11 ára

Tími: Kl. 9-12
Fæðingarár: 2008-2009-2010-2011-2012

Verð:
Námskeið 1 og 2 - 12.800 kr.
Námskeið 3 og 4 -15.900 kr.

10% systkinafsláttur af barni nr. 2. sem kemur sjálfkrafa við pöntun


Markmið námskeiðanna er að kynna börnunum fyrir hinum fallegu hjólaleiðum sem er að finna í nágrenni borgarinnar ásamt því að fá grunnþekkingu í hjólafærni. Við byrjum alltaf á sama staðnum.
Námskeiðin eru eftirfarandi:
Námskeið 1 - 11.6-14.6 Öskjuhlíð og nágrenni (4 dagar)
Námskeið 2 - 18.6-21.6 Norðlingaskóli og nágrenni (4 dagar)
Námskeið 3 - 1.7-5.7 Öskjuhlíð og nágrenni (5 dagar)
Námskeið 4 - 8.7-12.7 Öskjuhlíð og nágrenni (5 dagar)

Hjól: fjallahjól, athuga vel að bremsur og gírar séu í góðu lagi. Gott er að hafa aukaslöngu ef það skildi springa. Börn skulu koma með nesti með sér (t.d. samloku og ávöxt) og drykk í bakpoka sem þau geta hjólað með. Einnig þurfa börnin að vera klædd í samræmi við veður hverju sinni. Hjálmaskylda er á námskeiðinu. Síðasta daginn verður grillveisla þar sem boðið verður upp á pylsur, drykki og fleira.
ATH að breytingar geta orðið á staðsetningu vegna veðurs.

Leiðbeinendur eru Þóra Katrín Gunnarsdóttir, Erla Sigurlaug Sigurðardóttir og Björk Kristjánsdóttir sem eru reyndar hjólakonur úr Tindi.
Erla Sigurlaug og Björk eru með þjálfarapróf frá ÍSÍ.

Skráning í vefverslun Tinds https://bit.ly/2L5OK6c

Frekari upplýsingar fást á info@tindur.cc

Ragnar Freyr Magnússon